Yfirstandandi sýning: 11. apríl - 23. maí
Staðsetning: Verslunin Vest, Dalvegi 30, Kópavogi. Opið virka daga kl 11-17:30 & laugardaga kl 11-16.
Sýningin Veður er þriðja einkasýning Steinunnar og er sjálfstætt framhald af sýningunni Jörð frá árinu 2022. Hörstrigi, sandur og jarðlitir njóta sín áfram í bland við græna tóna.
Innblástur verkanna er sóttur í áhrif veðurfars á náttúruna, hvernig veðrið mótar hana og breytir. Íslendingar hafa í gegnum tíðina þurft að taka tillit til veðurs á harðbýlli eyju sinni. Veðrið hefur haft áhrif á líf og afkomu til sjós og lands. En veður breytir líka köldum jarðvegi undan snjóbreiðu í grænkandi ásýnd að vori með tilheyrandi litabreytingum. Land og sjór flæða saman. Snjór og græn grös mætast.
Verið hjartanlega velkomin!
Steinunn Eik
Architect & Artist
Bakgrunnur
Steinunn Eik Egilsdóttir, arkitekt og listamaður, er fædd á Akranesi 1988. Steinunn Eik lauk BA prófi í arkitektúr frá LHÍ 2011, meistaraprófi í arkitektúr frá Oxford Brookes háskóla í Englandi 2014 og framhaldsgráðu við Westminster háskóla í London 2018. Steinunn Eik hefur starfað sem arkitekt víða um heim, m.a. í þróunarlöndum, en vinnur nú sjálfstætt við hönnun og myndlist á Íslandi.
Í myndlistinni eru verk Steinunnar á mörkum málverka og skúlptúra, upphleypt með mikilli og grófri áferð. Innblástur verkanna er sóttur í íslenska náttúru og veðurfar. Hvert verk tekur langan tíma í vinnslu með áherslu á hugsun og alúð. Megin markmiðið er að hvert verk sé einstakt, en ekki fjöldaframleitt. Einnig sinnir Steinunn Eik verkefnum sem fela í sér hönnun og myndlist undir einum hatti með heildrænni nálgun.
PAST SHOWS:
HEIMÞRÁ 2024 / group show
Location: Akranes
All artwork sold out
JÖRÐ 2022 / solo show
Location: Vest design showroom, Reykjavik
All artwork sold out
FROST 2019 / solo show
Location: Listasalur Mosfellsbæjar
All artwork sold out
Nú fáanleg eftirprent í takmörkuðu upplagi af tveimur nýlegum verkum
EFTIRPRENT
Í starfi sínu blandar Steinunn Eik saman bæði arkitektúr og myndlist og
veitir sérhæfða þjónustu þar sem unnið er á heildrænan hátt með rýmið
Hafið samband í tölvupósti til að bóka heimsókn á vinnustofuna
Samfélagsmiðlar
Facebook síða: Steinunn Eik
Instagram síða: Steinunn Eik
Hafa samband
steinunneik@gmail.com
sími: 849 7085